

Baðplötur og önnur smíði fyrir baðherbergi












Spurningar og svör
Hvaða steintegund hentar best inn á baðherbergi?
Allar okkar steintegundir henta vel fyrir baðherbergi og þær lausnir sem við bjóðum upp á þar; baðplötur, vaska eða veggplötur. Valið ræðst því fyrst og fremst af þínum stíl og þörfum.
Quartzite er harðgerður náttúrusteinn með fallegum, áberandi æðum sem þolir bæði hita og rispur og krefst lítils viðhalds.
Granít er einnig sterkur náttúrusteinn, yfirleitt með rólegri áferð, og hefur svipaða eiginleika hvað varðar hitaþol, endingu og viðhald.
Marmari er einstaklega glæsilegur en er mjúkur og gljúpur steinn. Það þýðir að hann þarfnast meiri umhirðu og getur bæði rispast og blettast ef ekki er farið varlega.
Quartz er manngerður steinn sem er mjög endingargóður og viðhaldsfrír, en þar er þó mælt með að setja ekki heita potta og pönnur beint á yfirborðið.
Er erfitt að halda steinplötum hreinum?
Nei, yfirleitt nægir að þrífa með mildum hreinsiefnum og mjúkum klút.
Hvaða efni er best fyrir baðplötu?
Allar okkar steintegundir henta vel fyrir baðherbergi. Það er þinn persónulegi stíll sem ræður för.

