Eldhúseyjur

Eldhúseyjur

Eldhúsið er miðpunktur heimilisins, þar sem fjölskyldan sameinast, gestir heimsækja og góðar stundir skapast. Með eldhúseyju úr steini færðu ekki bara fallegt og endingargott yfirbragð heldur líka fjölmarga möguleika til að sérsníða rýmið að þínum þörfum.

Eldhúsið er miðpunktur heimilisins, þar sem fjölskyldan sameinast, gestir heimsækja og góðar stundir skapast. Með eldhúseyju úr steini færðu ekki bara fallegt og endingargott yfirbragð heldur líka fjölmarga möguleika til að sérsníða rýmið að þínum þörfum.

Eldhúseyjur og borðplötur

Spurningar og svör

Get ég haft vask eða helluborð í eyjunni?

Já. Við sérsníðum eyjuna í kringum þínar hugmyndir. Til dæmis, niðurfelldum vaski, helluborði, rafmagnstenglum og sitthvað annað eftir þínum óskum. Við vinnum með smiðum og rafvirkjum ef þörf er á.

Hver er hentugasti steinninn fyrir eldhús?

Allar okkar steintegundir henta vel í eldhús og valið ræðst fyrst og fremst af þínum stíl og þörfum; hversu mikið álag er á eldhúsinu og hvers konar viðhald þú treystir þér í.

Quartzite er harðgerður náttúrusteinn með fallegum, áberandi æðum sem þolir bæði hita og rispur og krefst lítils viðhalds.

Granít er einnig sterkur náttúrusteinn, yfirleitt með rólegri áferð, og hefur svipaða eiginleika hvað varðar hitaþol, endingu og viðhald.

Marmari er einstaklega glæsilegur en er mjúkur og gljúpur steinn. Það þýðir að hann þarfnast meiri umhirðu og getur bæði rispast og blettast ef ekki er farið varlega.

Quartz er manngerður steinn sem er mjög endingargóður og viðhaldsfrír, en þar er þó mælt með að setja ekki heita potta og pönnur beint á yfirborðið.

Þola steinborðplötur að lagðir séu heitir hlutir á þær?

Já plöturnar þola það. Við mælum þó ekki með því að setja til dæmis heita potta, ofnplötur eða sléttujárn beint á quartz borðplötu.

Getið þið sett nýja plötu á eldri innréttingu?

Já, við gerum mikið af því og það er yfirleitt ekkert mál. Ný borðplata ein og sér gefur eldhúsinu eða baðherberginu nýtt líf og gerir rýmin ennþá glæsilegri. 

Getur steinborðplata blettast eða dregið í sig vökva?

Quartz er alveg blettafrítt efni.

Ef að náttúrusteinn er óvarinn getur hann blettast. 

Marmari er mýkri steinn en granít og quartzite svo að hann er viðkvæmari og meiri lýkur eru á að hann blettist.

Ertu með verkefni í huga?

Opnunartími alla virka daga
frá 09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir. All rights reserved.

Ertu með verkefni í huga?

Opnunartími alla virka daga
frá 09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir. All rights reserved.

Ertu með verkefni í huga?

Opnunartími alla virka daga
frá 09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir. All rights reserved.