





Spurningar og svör
Þarfnast steinn mikils viðhalds utandyra?
Nei, steinn krefst lágmarks viðhalds og er auðveldur í þrifum.
Er steinn góður kostur í kringum grill?
Já, náttúrusteinn er hitaþolinn og hentar mjög vel í kringum grill og útieldhús án þess að skemmast. Quartz hentar ekki við þessar aðstæður.
Hvaða steintegundir henta best fyrir útisvæði?
Granít og quartzite eru vinsælust þar sem þeir eru mjög harðgerðir og þola vel íslenskt veður. Quartz hentar ekki fyrir aðstæður úti.
Er hægt að setja vask eða önnur tæki í útieldhúsið?
Já, hægt er að innbyggja vask, grill og önnur tæki eftir þínum þörfum.
Fyrir útieldhúsið mælum við sérstaklega með sérsmíðuðum vaski úr steini líka enda þolir það veðrabreytingarnar einstaklega vel.
Hversu vel þolir útieldhús úr steini íslenskt veður?
Steinn þolir frost, rigningu og hitasveiflur mjög vel og heldur útliti sínu til langs tíma.

