






"Í dag er þetta rými hjarta heimilisins – miðpunkturinn þar sem fjölskyldan kemur saman og á þessar fjölskyldustundir. Ég hefði ekki viljað gera þetta neitt öðruvísi, miðað við hvað við elskum þetta eldhús mikið - þetta hefði ekki getað verið fullkomnara" - Rakel Orra Þetta fallega eldhús varð til þegar stofu var umbreytt í nútímalegt og notalegt eldhús. Á heimilinu búa mörg börn og því mikið álag á eldhúsinu. Þess vegna var sérstaklega mikilvægt að velja stein sem þolir álagið án þess að láta á sjá. Steinninn varð einnig að vera hitaþolinn og henta til að skera á. Það var ekki síður mikilvægt að rýmið yrði fagurt, notalegt og ánægjulegt til dvalar. Náttúrusteinninn Mont Blanc quartzite varð fyrir valinu og fellur einstaklega vel að litum innréttinganna. Það var svo punkturinn yfir i-ið að fá snúningsbakka í eldhúsið úr sama steini. Minni snúningsbakkinn er á eldhúseyjunni við helluborðið en hann fær að geyma krydd og olíur. Stærri bakkinn er svo á borðstofuborðinu og prýddur blómum og kertum. Þegar eru veislur er honum svo umbreytt í stórglæsilegan ostabakka.
Um verkið
Tegund verks
Eldhús
Efni notað
Mont Blanc quartzite
Eiginleikar efnisins
Náttúrusteinn; Hitaþolinn; Rispast ekki
Mont Blanc







Myndir











Spurningar og svör
Getur steinborðplata blettast eða dregið í sig vökva?
Quartz er alveg blettafrítt efni.
Ef að náttúrusteinn er óvarinn getur hann blettast.
Marmari er mýkri steinn en granít og quartzite svo að hann er viðkvæmari og meiri lýkur eru á að hann blettist.
Hvað er afgreiðlsutíminn langur?
Afgreiðslutími frá því að tilboð hefur verið staðfest og þangað til steinn hefur verið settur upp eru um það bil 2-5vikur.
Þegar steinn hefur verið valinn gefum við þér tilboð. Þegar tilboð hefur verið samþykkt og innborgun greidd á verkið mætum við í mælingu hjá þér. Þegar mælingu er lokið hefst sérsmíðin og svo uppsetning á verkinu.
Við höldum þér vel upplýstum um allar tímasetningar í ferlinu og um allar breytingar sem kunna að verða á leiðinni.
Hvernig hugsa ég um steininn?
Viðhald steinsins er mismunandi eftir því hvaða steintegund þú ert með. Almennt séð mælum við með því að nota daily cleaner til daglegra þrifa og bera nano vörn ca einu sinni á ári á steininn.
Quartzite og Granít: Nano vörn 1 á ári
Marmari: Nano vörn 2 á ári
Quartz: Ekki þörf á að verja steininn
Hversu mikið viðhald þurfa borðplötur úr steini?
Það fer eftir hvaða steintegund er valin en þumalputtareglan er að marmara þarf að verja með stein-sealer tvisvar á ári og granít og quarzite einu sinni ári. Quartz er viðhaldsfrítt.



