






Í þessu verkefni var eldhúsið algjörlega tekið í gegn, skipt um innréttingar, gólefni ásamt því að setja stein á vinnufleti. Útkoman er stórglæsilegt, klassískt og bjart eldhús þar sem steinninn er viðhaldsfrír.
Um verkið
Tegund verks
Eldhús
Efni notað
Snowy Ibiza
Eiginleikar efnisins
Viðhaldsfrír, Blettafrír, Rispast ekki






Myndir







Spurningar og svör
Getur steinborðplata blettast eða dregið í sig vökva?
Quartz er alveg blettafrítt efni.
Ef að náttúrusteinn er óvarinn getur hann blettast.
Marmari er mýkri steinn en granít og quartzite svo að hann er viðkvæmari og meiri lýkur eru á að hann blettist.
Hvað er afgreiðlsutíminn langur?
Afgreiðslutími frá því að tilboð hefur verið staðfest og þangað til steinn hefur verið settur upp eru um það bil 2-5vikur.
Þegar steinn hefur verið valinn gefum við þér tilboð. Þegar tilboð hefur verið samþykkt og innborgun greidd á verkið mætum við í mælingu hjá þér. Þegar mælingu er lokið hefst sérsmíðin og svo uppsetning á verkinu.
Við höldum þér vel upplýstum um allar tímasetningar í ferlinu og um allar breytingar sem kunna að verða á leiðinni.
Hvernig hugsa ég um steininn?
Viðhald steinsins er mismunandi eftir því hvaða steintegund þú ert með. Almennt séð mælum við með því að nota daily cleaner til daglegra þrifa og bera nano vörn ca einu sinni á ári á steininn.
Quartzite og Granít: Nano vörn 1 á ári
Marmari: Nano vörn 2 á ári
Quartz: Ekki þörf á að verja steininn
Hversu mikið viðhald þurfa borðplötur úr steini?
Það fer eftir hvaða steintegund er valin en þumalputtareglan er að marmara þarf að verja með stein-sealer tvisvar á ári og granít og quarzite einu sinni ári. Quartz er viðhaldsfrítt.


