Infinity

Quartzite

Verde Acquarello

Quartzite

Negresco

Quartzite

Infinity

Quartzite

Verde Acquarello

Quartzite

Negresco

Quartzite

Infinity

Quartzite

Verde Acquarello

Quartzite

Negresco

Quartzite

...

Steinlausnir fyrir Baðherbergi

Steinlausnir fyrir Baðherbergi

Dreymir þig um sérsmíðaða handlaug, glæsilega snyrtiaðstöðu eða sérsniðna veggplötu í sturtuna? Viltu vaskaplötu sem þolir allt? Í rými þar sem raki og gufa er mikil, eru steinplötur einstaklega hentugar. Öll efni sem við bjóðum upp á henta fullkomlega fyrir baðherbergi, en það er þinn persónulegi stíll sem ræður för við val á efni. Við bjóðum upp á lausnina og aðstoðum þig við að velja hið fullkomna efni fyrir þitt baðherbergi.

Hvers vegna steinn á baðherbergi?

Steinn er frábær kostur á baðherbergi þar sem hann sameinar endingu, fallegt útlit og þolir vel raka. Hann hentar sérstaklega vel í rými þar sem álag, vatn og hitabreytingar eru hluti af daglegri notkun.

Rakaþol og vatnsheldni

Steinn þolir vel raka og vatn, sem gerir hann fullkominn fyrir baðherbergi. Rétt meðhöndlaður steinn hrindir frá sér vatni og dregur úr hættu á blettum, myglu og skemmdum, sem stuðlar að hreinna og heilbrigðara rými.

Þolir hitabreytingar

Á baðherbergjum verða oft miklar hitasveiflur, til dæmis frá heitum sturtum og köldu lofti. Steinn þolir slíkar breytingar vel og hentar því sérstaklega vel í þetta umhverfi. Hann þolir einnig hita frá heitum hlutum eins og sléttujárnum, krullujárnum og öðrum raftækjum, sem gerir daglega notkun bæði öruggari og þægilegri.

Auðveld umhirða

Steinborðplötur eru einstaklega þægilegar í umhirðu. Þétt yfirborðið hrindir frá sér óhreinindum og oft nægir að strjúka yfir með rökum klút. Við mælum með að nota Easy Clean sprey til daglegra þrifa, svo borðplatan haldi fersku og glæsilegu útliti sínu án mikillar fyrirhafnar, ár eftir ár.

Fjölbreytt Steinlausnir fyrir Baðherbergi

Sérlausnir Fyrir Þitt Eldhús

Veggklæðningar

Veggplötur úr steini sem vernda gegn raka og hita. Fullkomnar í eldhús og baðherbergi með stílhreinu útliti og mikilli endingu.

Badplotur

Sérsmíðaðar baðplötur úr steini sameina glæsilegt útlit og mikla endingu. Lausnir sem henta öllum baðherbergjum og standast raka og daglega notkun.

Spurningar og svör

Get ég sett heit tæki eins og sléttujárn beint á steininn?

Já, náttúrusteinn þolir hita vel og er því góður kostur þar sem heit raftæki eru notuð daglega. Quartz steinninn þolir þó einungis hita upp í 200°, svo við mælum með að passað sé upp á sléttujárnin í kringum þann stein. 

Hvaða steinn hentar best fyrir mitt baðherbergi?

Allar okkar steintegundir henta vel fyrir baðherbergi. Það er þinn persónulegi stíll sem stýrir því hvaða steinn hentar best fyrir þitt rými.

Er erfitt að halda steini hreinum á baðherbergi?

Nei, steinn er almennt auðveldur í þrifum og með reglulegri umhirðu helst hann fallegur og hreinlegur til langs tíma.

Hentar steinn vel á baðherbergi?

Já, steinn er mjög hentugur á baðherbergi þar sem hann þolir raka, hitabreytingar og daglega notkun afar vel.

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir