Steinlausnir fyrir Eldhús
Steinlausnir fyrir Eldhús
Eldhúsið er hjarta heimilisins og þegar eldhúsið er bæði fallegt og þægilegt að vinna í, verjum við meiri tíma þar og njótum hans enn betur. Endurnýjaðu eldhúsið með glæsilegum og endingargóðum steinborðplötum frá Steinlausnum. Við sérsmíðum borðplötur, eyjur og aðrar lausnir sem umbreyta hjarta heimilisins. Fáðu innblástur og skoðaðu úrval steintegunda; quartzite, granít, marmari og quartz.
Af hverju að velja steinborðplötu?
Steinborðplata er ekki aðeins falleg viðbót við eldhúsið heldur einnig fjárfesting sem gleður þig dag eftir dag til margra ára. Hér eru nokkrar af ástæðunum fyrir því að steinn er frábær kostur fyrir þitt heimili.
Framúrskarandi ending
Steinborðplötur eru þekktar fyrir einstakan styrk og langa endingu. Þær standast vel mikið álag og eru mjög þolnar gegn rispum og daglegu sliti. Það má segja að steinborðplötur séu því traust fjárfesting sem heldur fallegu og vönduðu útliti sínu um ókomin ár.
Hitaþolinn
Einn helsti kostur náttúrusteins er hversu vel hann þolir hita. Þú getur lagt heita potta og pönnur beint á borðplötuna án þess að hafa áhyggjur af skemmdum. Þessi eiginleiki gerir eldhúsverkin bæði einfaldari og öruggari.
Auðveld umhirða
Steinborðplötur eru einstaklega þægilegar í umhirðu. Þétt yfirborðið hrindir frá sér óhreinindum og oft nægir að strjúka yfir með rökum klút. Við mælum með að nota Easy Clean sprey til daglegra þrifa, svo borðplatan haldi fersku og glæsilegu útliti sínu án mikillar fyrirhafnar, ár eftir ár.
Fjölbreytt Steinlausnir fyrir Eldhús
Sérlausnir Fyrir Þitt Eldhús

Eldhúseyjur
Eldhúseyjur úr steini sem sameina gæði, endingu og glæsilegt útlit. Skoðaðu sérsniðnar lausnir og fáðu tilboð í fullkomna eldhúseyju fyrir þitt heimili.

Veggklæðningar
Veggplötur úr steini sem vernda gegn raka og hita. Fullkomnar í eldhús og baðherbergi með stílhreinu útliti og mikilli endingu.
Spurningar og svör
Get ég fengið vask úr sama efni og borðplatan?
Já, við bjóðum upp á innfellda vaska úr sama efni og borðplatan. Þetta skapar einstaklega nútímalegt útlit þar sem vaskur og borðplata renna saman í eitt.
Get ég fengið að sjá sýnishorn af steinunum?
Já, hjá okkur geturðu séð sýnishorn af flestum steinum og tekið með þér prufur heim til að máta við annað í rýminu.
Getið þið sett nýja plötu á eldri innréttingu?
Já, við gerum mikið af því og það er yfirleitt ekkert mál. Ný borðplata ein og sér gefur eldhúsinu nýtt líf og gerir það ennþá glæsilegra.
Hvaða steinefni eru hita- og rispuþolin?
Quartzite og granít eru bæði hita og rispuþolin. Marmari er hitaþolinn en quartz er rispuþolið.












































