Infinity

Quartzite

Verde Acquarello

Quartzite

Negresco

Quartzite

Infinity

Quartzite

Verde Acquarello

Quartzite

Negresco

Quartzite

Infinity

Quartzite

Verde Acquarello

Quartzite

Negresco

Quartzite

...

Steinlausnir fyrir Útisvæði og Garðinn

Steinlausnir fyrir Útisvæði og Garðinn

Steinn er ekki eingöngu ætlaður innanhúss – hann nýtur sín einnig vel utandyra, jafnvel við krefjandi íslenskar aðstæður. Með steini færðu slitsterkt, veðurþolið og stílhreint yfirborð sem hentar fullkomlega fyrir grill, útieldhús og notaleg samverusvæði. Hvort sem markmiðið er að setja upp einfalt grillsvæði eða skapa vandað útisvæði með arni eða eldgryfju, þá er steinn áreiðanleg lausn sem sameinar útlit, styrk og lágmarks fyrirhöfn í viðhaldi.

Hvers vegna steinn í garðinn?

Steinn er frábær kostur fyrir útisvæði þar sem hann sameinar styrk, veðurþol og fallegt útlit. Hann hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður og gerir þér kleift að skapa útirými sem endist og nýtist allt árið.

Ending og veðurþol

Steinn þolir íslenskt veður afar vel – hvort sem það er rigning, frost eða miklar hitabreytingar. Hann heldur sér fallegum ár eftir ár án þess að láta á sjá.

Þolir hita frá grilli og eldgryfju

Náttúrusteinn er hitaþolinn og hentar því fullkomlega í kringum grill, útieldhús eða eldgryfjur. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af heitum pottum, grillbúnaði eða neistum. Quartz er ekki náttúrusteinn og þoli ekki hita sem þennan.

Lágmarks viðhald og auðvelt að þrífa

Steinn er slitsterkt efni sem er auðvelt í þrifum og krefst lítils viðhalds. Það gerir hann sérstaklega hentugan fyrir útisvæði sem á að vera bæði fallegt og praktískt.

Fjölbreytt Steinlausnir fyrir Útisvæði og Garðinn

Sérlausnir Fyrir Þitt Eldhús

Útieldhús

Sérsmíðuð útieldhús úr steini sem þola íslenskt veður. Endingargóð, falleg og viðhaldslétt lausn fyrir garðinn eða pallinn þinn.

Arinn úr steini fyrir heimili og garð

Sérsmíðaðir arnar úr steini fyrir heimili og garð. Falleg og endingargóð lausn sem þolir hita, veður og skapar notalega stemningu allt árið um kring.

Borð

Sérsmíðuð borð úr steini fyrir eldhús, stofu, skrifstofu og útisvæði. Endingargóð, falleg og hönnuð eftir þínum þörfum og stíl.

Spurningar og svör

Get ég fengið sérsniðnar lausnir fyrir mitt útisvæði?

Já, hægt er að sérsmíða steinlausnir eftir þínum þörfum og hönnun.

Get ég notað stein í útiborð eða sófaborð?

Já, steinn hentar mjög vel í útihúsgögn og getur jafnvel verið með innbyggðum arni eða eldgryfju.

Þarfnast steinn mikils viðhalds utandyra?

Nei, steinn krefst lágmarks viðhalds og er auðveldur í þrifum.

Er steinn góður kostur í kringum grill?

Já, náttúrusteinn er hitaþolinn og hentar mjög vel í kringum grill og útieldhús án þess að skemmast. Quartz hentar ekki við þessar aðstæður.

Þolir steinn frost og hitabreytingar?

Já, náttúrusteinar eins og granít, marmari og quartzite er hannaður af náttúrunni til að standast miklar hitabreytingar og frost.

Hvaða steintegundir henta best fyrir útisvæði?

Granít og quartzite eru vinsælust þar sem þeir eru mjög harðgerðir og þola vel íslenskt veður. Quartz hentar ekki fyrir aðstæður úti.

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir