Baðplötur úr steini
Baðplötur úr steini
Baðplötur úr steini eru bæði falleg og praktísk lausn fyrir nútímaleg baðherbergi. Þær sameina glæsilegt útlit og mikla endingu, sem gerir þær að vinsælum valkosti fyrir þá sem vilja vandaða og tímalausa hönnun. Með fjölbreyttu úrvali af litum, áferðum og steintegundum er auðvelt að finna lausn sem passar fullkomlega við þinn stíl.
Steinn þolir vel raka, hitabreytingar og aðra daglega notkun, sem skiptir miklu máli í rými eins og baðherbergi. Baðplötur frá Steinlausnum eru sérsmíðaðar eftir þínum þörfum. Við smíðum hvaða stærð sem er, lögun eða útfærslu sem þitt rými þarfnast. Þannig færðu ekki aðeins fallegt yfirborð heldur einnig lausn sem endist og heldur útliti sínu til lengri tíma.
Sérsmíði og Uppsetning
Allar baðplötur frá Steinlausnum eru sérsmíðaðar til að passa fullkomlega að þínu rými. Hvort sem þú ert með lítið baðherbergi eða stærra rými með tvöföldum vöskum, þá er hægt að aðlaga lausnina að þínum þörfum.
Sérsniðnar stærðir og lögun eftir mælingum
Val um niðurfellda eða yfirfellda vaska
Mismunandi þykktir og kantafrágangur
Hægt að samræma við aðra steinlausnir í rýminu
Ferlið er einfalt og faglegt – við ráðleggjum við efnisval og útfærslu, sjáum um nákvæmar mælingar og tryggjum vandaða uppsetningu. Þannig færðu heildarlausn sem hentar baðherberginu þínu fullkomlega.
Spurningar og svör
Er hægt að setja bæði niðurfelldan og yfirfelldan vask í steinplötu?
Já, hægt er að velja þá útfærslu sem hentar best hönnun og notkun rýmisins.
Þola baðplötur hita, eins og frá sléttujárnum?
Já, steinn þolir vel hita, sem gerir hann góðan kost inn á baðherbergi. Quartz þolir þó ekki hærri hita en 200°
Get ég fengið baðplötu sérsmíðaða eftir mínu rými?
Já, allar baðplötur eru sérsmíðaðar eftir málum, lögun og þínum óskum.
Er erfitt að halda steinplötum hreinum?
Nei, yfirleitt nægir að þrífa með mildum hreinsiefnum og mjúkum klút.
Hvaða efni er best fyrir baðplötu?
Allar okkar steintegundir henta vel fyrir baðherbergi. Það er þinn persónulegi stíll sem ræður för.
Henta baðplötur úr steini í rakt umhverfi?
Já, steinn þolir raka og gufu mjög vel. Hann er því frábær lausn fyrir baðherbergi.




































