Eldhúseyjur
Eldhúseyjur
Eldhúsið er miðpunktur heimilisins, þar sem fjölskyldan sameinast, gestir heimsækja og góðar stundir skapast. Með eldhúseyju úr steini færðu ekki bara fallegt og endingargott yfirbragð heldur líka fjölmarga möguleika til að sérsníða rýmið að þínum þörfum.
Við sérsmíði fyrir eldhús eru ótal útfærslumöguleikar:
þykktar borðplötur og eyja
steinfætur niður í gólf
steinplata á bakhlið eyjunnar
steinn inn í tækjaskáp
Allt þetta skapar eldhúsinu einstakan glæsileika sem grípur augað.
Hönnunarmöguleikar & Sérsnið
Það eru endalausar útgáfur af fallegum eldhúseyjum, til dæmis:
Eyja þar sem fætur ná niður í gólf
Steinn á borðplötu og í bakhlið eyjunnar
Steinn inn í tækjaskáp og veggklæðningar
Mismunandi steintegundir inn í sama rými
Mismunandi þykktir, útlit, kantar og yfirborðslögun.
Gott að hafa í huga áður en þú pantar eldhúseyju
Gott er að hafa í huga:
stærð rýmis
hvort eyjan eigi að hýsa vask/hellur
hæð & yfirhang (út frá stólum)
notkun (matargerð, borð, rými fyrir börn, samverustundir)
lýsingu og rafmagn
Við aðstoðum með allar ákvarðanir.
Spurningar og svör
Er hægt að sjá eða fá sýnishorn af steinum?
Já. Þú getur komið í verslunina okkar, skoðað mismunandi steintegundir, og fengið prufur með þér heim.
Hvernig þoli steinborðplötur hita?
Flestir náttúrusteinar þola vel hitabakka, en við mælum alltaf með hitapúðum til að forðast litabreytingar eða spennumun.
Quartz (mótunarsteinn) er sérstaklega viðkvæmur fyrir miklum hita.
Getur eldhúseyja innihaldið vaska, helluborð eða rafmagn?
Já. Við sérsníðum eyjuna í kringum þínar hugmyndir. Til dæmis, niðurfelldum vaski, helluborði, rafmagnstenglum og sitthvað annað eftir þínum óskum. Við vinnum með smiðum og rafvirkjum ef þörf er á.
Get ég fengið sama stein fyrir eldhúseyju, borðplötur, og bakplötur?
Já. Við getum búið til heildstæða steinlausn með borðplötu, bakplötu, stein á hlið eða hafa eyjunnar og stein í tækjaskáp.
Hvaða steintegundir henta best í eldhúseyju?
Algengustu valkostirnir eru granít, kvartsít, marmari og quartz. Við ráðleggjum efni út frá notkun og stíl eldhússins





















































