Super White Calacatta

Quartzite

Patagonia Green

Quartzite

Infinity

Quartzite

Glacier Tesla

Quartzite

Super White Calacatta

Quartzite

Patagonia Green

Quartzite

Infinity

Quartzite

Glacier Tesla

Quartzite

Super White Calacatta

Quartzite

Patagonia Green

Quartzite

Infinity

Quartzite

Glacier Tesla

Quartzite

Steinvaskar

Steinvaskar

Steinvaskar sameina endingu, náttúrulega fegurð og tímalausa hönnun í einni lausn. Með vask úr steini færðu ekki aðeins sterkt og slitþolið yfirborð, heldur einnig einstakt útlit þar sem hver vaskur er sérsniðinn að sínu rými.

Hvort sem um er að ræða baðherbergi eða eldhús, þá bjóða steinvaskar upp á fágað yfirbragð sem lyftir rýminu á hærra stig. Þeir þola daglega notkun, raka og hitabreytingar vel – og eru því bæði praktísk og glæsileg lausn til lengri tíma.

Steinvaskar sem lyfta rýminu

Steinvaskar sem lyfta rýminu

Afhverju að velja steinvask

Steinvaskar eru kjörinn kostur fyrir þá sem vilja fallegt útlit og góða endingu. Þeir eru afar slitsterkir, þola vel raka, hitasveiflur og halda glæsilegu yfirbragði sínu til lengri tíma. Þar að auki er hver vaskur sérsniðinn að sínu rými.

Afhverju að velja steinvask

Steinvaskar eru kjörinn kostur fyrir þá sem vilja fallegt útlit og góða endingu. Þeir eru afar slitsterkir, þola vel raka, hitasveiflur og halda glæsilegu yfirbragði sínu til lengri tíma. Þar að auki er hver vaskur sérsniðinn að sínu rými.

Afhverju að velja steinvask

Steinvaskar eru kjörinn kostur fyrir þá sem vilja fallegt útlit og góða endingu. Þeir eru afar slitsterkir, þola vel raka, hitasveiflur og halda glæsilegu yfirbragði sínu til lengri tíma. Þar að auki er hver vaskur sérsniðinn að sínu rými.

Hvar hentar steinvaskur best?

Við smíðum steinvaska í hin ýmsu rými. Þeir falla vel að mismunandi stílum og notkun, hvort sem um er að ræða daglegt álag eða rými þar sem útlitið fær að njóta sín.

  • Baðherbergi – vinsæll kostur þar sem steinn þolir raka vel og skapar fágað yfirbragð

  • Eldhús – slitsterk lausn sem hentar vel fyrir daglega notkun og samræmist borðplötum úr steini

  • Gestasnyrtingar – gefur rýminu lúxusáferð og setur sterkan svip á minna rými

  • Þvottahús – endingargóður kostur sem þolir vatn, óhreinindi og mikla notkun

  • Opin rými og sérverkefni – til dæmis í sumarhúsum eða öðrum hönnunarverkefnum þar sem leitast er eftir einstöku útliti

Hvort sem rýmið er stórt eða lítið, þá sníðum við steinvask sem hentar þínu rými.

Sérsmíðaðir vaskar

Hjá Steinlausnum eru steinvaskar sérhannaðir frá grunni með rýmið þitt og þarfir þess í forgrunni. Hver vaskur er unninn eftir nákvæmum málum og sérsniðinn að þínum óskum.

Með sérsmíði opnast fjölmargir möguleikar til að útfæra vaskinn nákvæmlega eins og þú vilt hafa hann. Þar má meðal annars velja stærð eftir máli, mismunandi form, útfærslur á niðurföllum sem og steintegund og áferð.

Við veitum ráðgjöf um allar þessar útfærslur og leiðum þig í gegnum ferlið frá upphafi til enda.

Spurningar og svör

Hvaða steintegundir eru í boði fyrir vaska?

Allar okkar steintegundir henta vel fyrir vaska. Það er þinn persónulegi stíll sem ræður för. 

Þola steinvaskar heita hluti?

Já, steinn þolir vel hita, sem gerir steinvaska hentuga þar sem heitir hlutir koma við sögu, eins og í eldhúsi eða með hártæki á baðherbergi. Quartz þolir þó ekki hærri hita en 200°

Er hægt að fá steinvask í sérsniðinni stærð?

Já, hjá Steinlausnum eru vaskar sérsmíðaðir eftir þínum málum og óskum.

Henta steinvaskar bæði í eldhús og baðherbergi?

Já, þeir henta afar vel í bæði rými. Þótt þeir séu algengari á baðherbergjum í dag, er notkun þeirra í eldhúsum sífellt að aukast.

Getur steinvaskur rispast eða skemmst?

Steinn er mjög sterkt efni, en eins og með önnur yfirborð getur hann rispast við mikla eða ranga notkun – þó er það sjaldgæft við venjulega notkun.

Er erfitt að halda steinvaski hreinum?

Nei, steinvaskar eru auðveldir í viðhaldi og nægir yfirleitt að þrífa þá með mildu hreinsiefni og vatni.

Hversu endingargóðir eru steinvaskar?

Steinvaskar eru mjög slitsterkir og þola vel daglega notkun, raka og hitabreytingar án þess að tapa útliti sínu.

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir

Ertu með verkefni í huga?
Bókaðu ráðgjöf!

Opið virka daga frá
09:00 - 17 :00

© 2026 Steinlausnir