Hreinsivörur fyrir stein
Hreinsivörur fyrir stein
Rétt umhirða skiptir sköpum þegar kemur að því að viðhalda fegurð og endingu. Með sérhæfðum hreinsivörum tryggir þú að steinninn haldi sínum náttúrulega ljóma án þess að skemmast eða missa eiginleika sína.
Hjá Steinlausnum bjóðum við upp á hreinsivörur sem eru sérstaklega þróaðar fyrir mismunandi viðhald steins. Hvort sem um er að ræða daglega þrif eða djúphreinsun færðu lausnir sem vernda yfirborðið og einfalda viðhaldið.
Spurningar og svör
Get ég notað hreinsivörurnar bæði inni og úti?
Já, margar hreinsivörur henta bæði fyrir innanhúss og utanhúss notkun, en það fer eftir vörutegund.
Eru hreinsivörurnar öruggar fyrir allar steintegundir?
Flestar vörur eru hannaðar fyrir ákveðnar steintegundir, svo mikilvægt er að velja rétta vöru fyrir þinn stein.
Hversu oft þarf að hreinsa steinyfirborð?
Dagleg þrif með mildum efnum duga oft. Við mælum með Easy Clean spreyi. Djúphreinsun fer svo eftir notkun og álagi.
Má ég nota venjuleg heimilishreinsiefni á stein?
Ekki er mælt með því, þar sem mörg heimilishreinsiefni innihalda efni sem geta skemmt steininn.
Hvaða hreinsivörur á ég að nota fyrir stein?
Notaðu sérhæfðar hreinsivörur fyrir stein sem eru mildar og sýrulausar til að vernda yfirborðið.




























