Fallegir og endingargóðir bakkar úr steini
Fallegir og endingargóðir bakkar úr steini
Það er fátt sem setur jafn sterkan svip á veisluborðið og vandaður kökubakki eða snúningsbakki úr steini. Hvort sem þú ert að bera fram mat eða skreyttar kökur, þá fær allt nýtt yfirbragð þegar það er sett fram á einstökum bakka. Bakkarnir nýtast einnig vel undir olíur, krydd og aðra skrautmuni.
Bakkarnir eru allir sérsmíðaðir fyrir þig úr þeim steini sem þú kýst og hægt er að velja um nokkrar stærðir. Í versluninni okkar er hægt að sjá nokkra bakka uppsetta sem gefur fólki tækifæri á að skoða og meta hvaða stærð myndi henta best.
Hönnunarmöguleikar & Sérsnið
Bakkar eru fáanlegir í mismunandi stærðum og útfærslum svo þeir henti hverju rými og notkun.
Mismunandi stærðir eru á bökkunum
Hægt er að velja steintegund sem þú vilt
Hægt að velja útfærslu sem passar við rýmið
Með réttri stærð og útfærslu færðu bakka sem passar fullkomlega inn í þitt rými.
Bakki fyrir þitt rými
Glæsilegir og vandaðir bakkar setja fágaðan svip á hvert veisluborð og nýtast jafnframt vel í daglegu lífi – undir skrautmuni, krydd og olíur, blómavasa og kertastjaka, eða til framreiðslu á mat. Þeir falla auðveldlega inn í hvaða rými sem er og eru einföld leið til að fríska upp á eldhúsið.
Spurningar og svör
Eru bakkarnir endingargóðir?
Já, steinn er slitsterkt efni sem heldur bæði útliti og gæðum yfir langan tíma.
Hvað er best að nota bakkana í?
Þeir henta vel fyrir olíur, krydd, blómavasa, kertastjaka, sem ostabakkar, á matarborðið… Í rauninni hvað sem er sem þú vilt hafa á borðplötunni.
Get ég fengið bakka sem passar við borðplötuna mína?
Já, hægt er að velja bakka sem samræmast efni og lit borðplötunnar fyrir heildstætt útlit.
Fást bakkarnir í mismunandi stærðum?
Já, bakkar eru í boði í mismunandi stærðum og útfærslum eftir þörfum.
Eru bakkarnir auðveldir í þrifum?
Já, það er einfalt að þrífa þá með rökum klút og mildum hreinsiefnum.
Þola bakkarnir hita og raka?
Já, steinn þolir bæði hita og raka vel, sem gerir bakkana hentuga fyrir eldhús.
Úr hvaða efni eru bakkarnir?
Hægt er að velja hvaða efni sem við bjóðum upp á; quartz, quartzite, granít eða marmara.








































